Flugskóli Akureyrar

Boðið upp á fjarnám Bóklegt Námskeið hefst 17. janúar Vöfflu-kaffið Kynnisflug fyrir nemendur V.M.A. / M.A. / H.A. Flugkoma á Melgerðismelum ( BIMM )

Fréttir

Boðið upp á fjarnám

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á fjarnám á bóklegu einkaflugmannsnámskeiði sem hefst 17. janúar samhliða almennri kennslu, skráning í síma: 4600300 eða flugnam@flugnam.is

Bóklegt Námskeið hefst 17. janúar

Skráning er hafin á bóklega einkaflugmannsnámskeið (PPL) sem hefst 17. janúar. Kennt er til einkaflugmannsprófs sem er fyrsti áfangi til atvinnuflugmannsréttinda. Námskeiðið er kvöldnámskeið.  Námið veitir einingar sem valgrein í framhaldsskólum.
Boðið verður upp á fjarnám.

Staðfestingargjald er kr. 20.000.- 


Vöfflu-kaffið

Hið margrómaða og ágæta vöfflukaffi Vélflugfélags Akureyrar byrjar aftur eftir sumardvala  laugardaginn 8. okt.  Það verður að venju í aðstöðu félagsins í Skýli 13 . Þess má geta að ný kaffivél hefur verið keypt og býður hún upp á fleiri tegundir af drykkjum. 

Veitingar , umræður og sögur að vanda.  

Njótum þess !


Kynnisflug fyrir nemendur V.M.A. / M.A. / H.A.

 Nemendur V.M.A. / M.A. / H.A. fá 50% afslátt á kynnisflugum í september - nóvember með framvísun  skólaskírteinis.. nýtið tækifærið og prófið að fljúga ódýrt.

Bóklegt námskeið hefst í byrjun janúar dagsetning ákveðin síðar , Flugskólinn mælir með að verklegi hlutinn sé hafinn áður en bóklegt námskeið hefst .

Munið að bóka fyrirfram á heimasíðu okkar eða í síma 4600300  


Flugkoma á Melgerðismelum ( BIMM )

Laugardaginn 13. ágúst verður Flugkoma og lendingarkeppni Vélflugfélags Akureyrar á Melgerðismelaflugvelli ( BIMM),  ath. tíðni 119,9 Mhz sjá nánar á www.velflug.is

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf