
Fyrsta
vöfflukaffi ársins var haldið í gær, laugardaginn 3. janúar...

Fyrsta
vöfflukaffi ársins var haldið í gær, laugardaginn 3. janúar. Mæting var eftir atvikum, fremur fámennt en þó má segja
það án hiks að það var góðmennt. Meðal þeirra sem mættir voru má nefna undirritaðan, Braga, Stjána Víkings, Gunna
Víðis, Dóa Formann, Kela og fleiri mættu en ég man ekki að nefna. Bakað var úr þó-nokkrum grömmum af vöfflumixi og allur
kaffikorgur sem fyrir fannst í skýli 13 var notaður. Er hér með lýst eftir meira af kaffidufti :). Margt var spjallað eins og gengur enda
áramót ný-afstaðin og frá morgu að segja, en vita skuld verður það ekki haft eftir sökum þess að... "what happens in Vöfflukaffi,
stays in Vöfflukaffi". Ef menn vilja vita hvað þarna fer fram þá hvet ég menn til að mæta næsta laugardag um 3 leytið og gæða
sér á rjúkandi vöfflum yfir góðum sögum.
Sjáumst heil
RFR

