Einkaflugmannsskírteini PPL(A)
Flugskóli Akureyrar veitir kennslu til einkaflugmannsréttinda. Námið er tvíþætt, annars
vegar verklegir flugtímar og hins vegar bóklegt námsskeið. Einkaflugmannsréttindi veita flugmanni rétt til að fljúga og ferðast hvert sem er um
landið og jafnvel erlendis með farþega, en án greiðslu. Þar að auki eru réttindin nauðsynleg sem fyrsta skref fyrir þá sem hyggja á
nám til atvinnuflugmanns. Hversu langan tíma flugnámið tekur veltur mikið á viðkomandi einstaklingi, en þó eru vissar kvaðir um það
samkvæmt reglugerðum. Algengt er að flugnemar ljúki námi á 1 - 1 ½ ári. Flugskóli Akureyrar í samstarfi við Landsbanka
Íslands býður flugnemum upp á námslán til lengri tíma, ef óskað er.
Verklegur hluti
Lágmarks tímafjöldi fyrir einkaflugmannspróf er 45 tímar, þar af eru lágmark 25 tímar með kennara og
lágmark 10 einflugstímar. Nemandi þarf að vera orðinn 16 ára til að kennari megi senda hann í einflug (solo) og 17 ára til að mega
þreyta einkaflugmannspróf.
Bóklegur hluti
Samanstendur af níu fögum, Flugreglur, Siglingafræði, Verklag í flugi, Heilbrigðisfræði,
Afkasta og áætlanagerð, Vélfræði, Veðurfræði, Flugeðlisfræði og Fjarskipti. Eitt námskeið er haldið árlega,
það stendur frá janúar til mars ,10-12 vikur og lýkur með prófum í mars/apríl. Kennt er fimm sinnum í viku,
kvöldnámskeið.
Heilbrigðiskröfur
Flugmenn verða að standast ákveðnar heilbrigðiskröfur. Um tvenns konar
heilbrigðisvottorð er að ræða, 1. flokks sem er skilyrði fyrir atvinnuflugmenn og 2. flokks sem dugar einkaflugmönnum. Við mælum með að nemar fari
í læknisskoðun áður en nám hefst. Til að fá nánari uppl. og panta tíma í læknisskoðun skal hafa samband við
læknaritara fluglæknis í síma 463-0197
Þeir sem hafa áhuga á flugnámi geta bókað sig í kynningarflug. Þar er námið kynnt ýtarlega og viðkomandi fer í flugferð til þess að kynnast fluginu áður en námssamningur er gerður.

