Flugskóli Akureyrar hefur afnot af 5
flugvélum.
Flugskólinn kennir á tvær Piper Tomahawk (PA-38-112). Þær voru framleiddar í Bandaríkjunum og eru sérhannaðar til flugkennslu. Þessi flugvélategund hefur verið notuð hér á Akureyri til fjölda ára og er talin mjög góð kennsluflugvél. Að auki á Flugskóli Akureyrar fjögurra sæta flugvél af gerðinni Piper Warrior II (PA-28-161) hún er framhaldsflugvél fyrir þá sem lokið hafa flugnámi. Einnig Citabria ( 7GCBC) til stélhjóls kennslu og Super Decathlon (8KCAB) sem er notuð til listflugskennslu og leigð til einkaflugmanna.

