Saga Flugskóla Akureyrar
Flugskóli Akureyrar var stofnaður á Melgerðismelum árið 1945 og voru stofnendur hans Gísli Ólafsson og Árni Bjarnason. Þeir félagar ráku skólann um nokkura ára skeið og var flogið frá Melgerðismelum, enda var Melgerðismelaflugvöllur þá flugvöllur Akureyrar. Flugflotinn var tvær Piper Cub kennsluflugvélar og Fleet Finch tvíþekja. Eftir að Akureyrarflugvöllur var byggður fluttist flugstarfsemi að mestu til Akureyrar. Flugkennslan varð síðar í höndum ýmissa aðila. Árið 1978 var skólinn endurvakinn að frumkvæði Flugfélags Norðurlands hf. Árið 2000 keypti Sella ehf. rekstur Flugskóla Akureyrar af Flugfélagi Íslands.1. júlí 2008 var nafni Sellu ehf. breytt í Flugfélag Akureyrar ehf.
Til flugkennslunnar í dag hefur skólinn tvær sérhannaðar flugvélar til umráða af gerðinni Piper Tomahawk Pa 38-112. Þær hafa reynst frábærlega til verklegrar flugkennslu.
Fleet Finch, TF-KAM
Piper Cub, TF-KAG
Piper Cub, TF-JMA
Piper Cub, TF-JMF

